Hvammskirkja í Laxárdal, Laxárdalur
Byggingarár: 1892
Hönnuðir: Ólafur Briem yngri og Þorlákur Þorláksson forsmiðir.
Saga
Elsta heimild um kirkju í Hvammi í Laxárdal er í máldaga Auðunar rauða biskups á Hólum frá um 1318 en hún hefur eflaust verið reist talsvert fyrr. Kirkjan var helguð hinum heilaga Ólafi. Núverandi kirkja var reist 1892 í stað eldri torf/timburkirkju sem var orðin mjög illa farin.
Friðuð 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.
Lýsing
Hvammskirkja er timburhús, 7,67 m að lengd og 5,66 m á breidd. Þakið er krossreist og upp af framstafni er ferstrendur turn með krossreistu þaki. Kirkjuveggir eru klæddir listaþili en þök bárujárni. Hún stendur á steinhlöðnum og steinsteyptum sökklinum og er stöguð niður á hornum. Á hvorri hlið kirkju eru tveir gluggar og einn heldur minni á framstafni. Í þeim er miðpóstur og tveir þriggja rúðu rammar. Hljómop með hlera fyrir er á framhlið turns. Fyrir kirkjudyrum er spjaldsett hurð.
Inn af dyrum er gangur og aftursættir þverbekkir hvorum megin hans en veggbekkir umhverfis í kór. Yfir fremsta stafgólfi framkirkju er afþiljað loft og stigi við framgafl norðan megin. Veggir eru klæddir strikuðum panelborðum og efst á þeim er ávöl sylla. Yfir innri hluta framkirkju og kór er panelklædd oddbogahvelfing.