Fara í efni
Til baka í lista

Betuhús, Æðey, Ísafjarðardjúpi

Friðlýst hús

Byggingarár: 1774

Byggingarár: Smíðað á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp á tímabilinu 1773–1786.

Breytingar: Flutt út í Æðey 1878 og endurreist þar. Síðar reist viðbygging við húsið sunnanvert og skúr við vesturhlið.[1]

Hönnuðir: Ókunnir.

Friðað 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.

 

Betuhús er einlyft, portbyggt timburhús með risþaki, 7,60 m að lengd og 3,99 m á breidd. Skúr er við suðurhlið hússins, 7,60 m að lengd og 3,96 m á breidd, og inngönguskúr við vesturgafl, 4,88 m að lengd og 1,40 m á breidd, báðir með skúrþaki. Húsið stendur á steinhlöðnum sökkli, veggir eru klæddir slagþili, þök bárujárni og reykháfur er á þakinu sunnanverðu. Á suðurstafni hússins eru tveir sex rúðu póstagluggar, tveir á norðurhlið auk þriggja rúðu glugga og á gaflhlaði vestan megin eru tveir tveggja rúðu gluggar og hurð fyrir miðju. Á suðurhlið skúrs eru tveir níu rúðu póstagluggar og einn sex rúðu á suðurgafli. Útidyr eru á vesturhlið inngönguskúrs og fjögurra rúðu póstagluggi.

Inn af inngönguskúr er forstofa og í henni stigi upp á loft og dyr að búri og kamesi en inn af því er stofa í austurhluta hússins. Í skúrnum er herbergi í hvorum helmingi og dyr að búri úr því fremra en að stofu úr því innra. Í risi er herbergi í hvorum helmingi. Veggir í eldri hluta hússins eru flestir klæddir standþili eða standþiljum en strikuðum panelborðum inn á milli. Skúr er klæddur strikuðum panelborðum. Í forstofu, búri og kamesi er loft á bitum, málningarpappír á milli bita í stofu og yfirfelld skarsúð á sperrum í risi. Skúrloft er klætt strikuðum panelborðum en inngönguskúr er ófrágenginn að innan. Forstofa, búr, kames og ris eru ómáluð.


[1]Húsafriðunarnefnd. Skjalasafn. Betuhús í Æðey.