Fara í efni
Til baka í lista

Bjargtangaviti, Bjargtangaviti, Látrabjargi

Friðlýst mannvirki

Byggingarár: 1948

Hönnuðir: Axel Sveinsson verkfræðingur og Einar Stefánsson húsateiknari.

Breytingar: Vitinn var húðaður ljósu kvarsi í upphafi en síðar kústaður með hvítu þéttiefni. [1]

Friðaður af menntamálaráðherra 1. desember 2003 samkvæmt 1. mgr. 3. gr. laga um húsafriðun, nr. 104/2001. Friðunin tekur til ytra og innra borðs vitans, þar með eru talin ljóshús, linsal linsuborð og lampi, hurðir, gluggar, stigi og handrið. Friðunin nær einnig til umhverfis vitans út að bjargbrún framan (vestan) hans og til hluta hrings með 100 m radíus út frá vitanum til norðurs, austurs og suðurs, en tekur ekki til vélahúss skammt frá vitanum.[2]

 

Bjargtangaviti er 5,9 metra hár, 3,7 m breiður og 6,4 m langur, byggður úr steinsteypu. Vitinn stendur á 0,5 m háum sökkli sem nær 0,6 m út fyrir veggi og er hornsneiddur að framan. Sökkull er múrhúðaður en veggir með grófri áferð. Útidyr eru í opnu anddyri á miðri bakhlið og fyrir þeim spjaldhurð og steinsteypt skyggni yfir. Á bakhliðinni eru fjórir gluggar, tveir hvorum megin skyggnis og aðrir tveir ofan þeirra efst á veggnum. Í hverjum þeirra eru tveir járnrammar með fjórum hleðsluglerjum. Vitinn hefur tvær meginformgerðir, annars vegar hátt hvasshyrnt turnform á bakhlið og hins vegar lægri bogformaða framhlið og þar ofan á sömuleiðis bogformað ljóshús sem gengur fram úr turninum. Yfir hvoru tveggja er steinsteypt þak og þakskegg sem gengur út yfir veggi. Efst á framhlið er kantur í beinu framhaldi af svalagólfi en upp af honum er steinsteypt handrið, lítið eitt utar en sjálfur veggurinn, og stallur á því neðst ásamt opum til að hleypa fram rigningarvatni.

Á jarðhæð var áður gashylkjageymsla og þar er stigi upp á pall á bak við ljóshúsið. Veggir og gólf eru múrhúðuð og máluð. Spjaldasett hurð er út á svalir framan við ljóshúsið og önnur inn í sjálft ljóshúsið. Þar er 270° díoptrísk 500 mm linsa með tveimur 110 volta 1000 watta perum.

Nærri vitanum er steinsteypt hús byggt 1960. Í því er vararafstöð, GPS-leiðréttingartæki og radíóflugviti. Skammt frá vitanum er mastur með sjálfvirkri veðurathugunarstöð.


[1]Siglingastofnun Íslands. Skjalasafn. Óflokkað Viðhaldsbók. Bjargtangaviti; Sigl. Ísl. Teikning A363 Bjargtangaviti; Guðmundur Bernódusson, Guðmundur L. Hafsteinsson og Kristján Sveinsson. Vitar á Íslandi. Bjargtangaviti, 264-265. Kópavogur 2002.

[2]Húsafriðunarnefnd. Skjalasafn. Friðunarskjal Bjargtangavita.