Fara í efni
Til baka í lista

Einarsstaðakirkja, Reykdælahreppur, S-Þingeyjarsýslu

Friðlýst kirkja

Byggingarár: 1862

Hönnuður: Árni Hallgrímsson forsmiður frá Garðsá.[1]

Breytingar: Í öndverðu var þak klætt listasúð en þakið síðar klætt bárujárni.[2]

Friðuð 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.

 

Einarsstaðakirkja er timburhús, 10,91 m að lengd og 6,37 m á breidd. Þakið er krossreist og upp af vesturstafni er ferstrendur turn með íbjúgu píramítaþaki. Kirkjan er klædd listaþili, þak bárujárni, turnþak sléttu járni og hún stendur á steinhlöðnum sökkli. Á hvorri hlið kirkju eru þrír gluggar og tveir á kórbaki. Í þeim er krosspóstur og rammar með sex rúðum. Sexrúðu gluggi, heldur minni, er ofarlega á framstafni. Lítill hringgluggi er á framstafni turns og ferstrend hljómop með hlera fyrir á hvorri hlið. Fyrir kirkjudyrum eru fjölspjalda vængjahurðir. Yfir þeim er stórstrikaður bjór og strikaðir faldar til hliða.

Inn af kirkjudyrum er gangur og skásettir bekkir eru hvorum megin hans en veggbekkir í kór. Prédikunarstóll er syðst í innstu bekkjarröð. Setuloft á bitum er yfir fremri hluta framkirkju og stigi í norðvesturhorni. Tvær súlur eru undir frambrún þess. Veggir eru klæddir spjaldaþili upp undir syllu við neðri brún glugga en standþiljum ofan hennar. Efst á veggjum er strikasylla en yfir kirkjunni stafna á milli er panelklædd súð og skammbitaloft.



[1]Hörður Ágústsson. Íslensk byggingararfleifð I. Ágrip af húsagerðarsögu 1750-1940, 233. Reykjavík 1998.

[2]Húsafriðunarnefnd. Skjalasafn. Einarsstaðarkirkja.