Fara í efni
Til baka í lista

Eyrarkirkja, Seyðisfirði

Friðlýst kirkja

Byggingarár: 1866

Byggingarár: 1866-1867.

Hönnuður: Þorvarður Þórðarson forsmiður.[1]

Friðuð 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.

 

Eyrarkirkja í Seyðisfirði er timburhús, 10,14 m að lengd og 5,92 m á breidd. Þakið er krossreist og upp af framstafni er ferstrendur turn með risþaki. Kirkjan er klædd listaþili en þök bárujárni og stendur hún á steinhlöðnum sökkli. Á hvorri hlið kirkju eru þrír póstagluggar með þriggja rúðu römmum, einn heldur minni á framstafni yfir kirkjudyrum og einn á kórbaki og eru efstu rúður í honum skásniðnar að ofan. Fyrir kirkjudyrum eru spjaldsettar vængjahurðir. Um þær eru stórstrikaðir faldar og skjöldur yfir með nafni kirkju og byggingarári en strikuð brík efst. 

Inn af kirkjudyrum er gangur að kór sem skilinn er frá framkirkju með lágu kórþili í baki innstu bekkja. Þverbekkir eru hvorum megin gangs og veggbekkir í kór. Prédikunarstóll er fyrir miðjum kórgafli ofan og innan altaris og stigi upp í hann sunnan megin. Setuloft á bitum er yfir tveimur fremstu stafgólfum framkirkju og stigi við framgafl norðan megin. Veggir eru klæddir spjaldaþili að neðan upp undir brjótslista en standþiljum að ofan. Tvær skástoðir ganga inn á gólf og styðja við suðurvegg. Efst á veggjum í kór er skrautmáluð sylla og strikasylla með tannstöfum. Yfir setulofti og næsta stafgólfi innan þess er súðarloft og skammbitaloft klætt strikuðum panelborðum. Uppi yfir innsta stafgólfi framkirkju og kór er panelklædd hvelfing.


[1]ÞÍ. Biskupsskjalasafn C, V. 144. Bréf 1869. Reikningur yfir byggingarkostnað Eyrarkirkju í Seyðisfirði árin 1866 og 1867.