Til baka í lista
Freyjugata 46
Friðlýst hús
Byggingarár: 1931
Hönnuður: Sigurður Guðmundsson arkitekt
Friðun
Friðað af mennta- og menningarmálaráðherra 19. maí 2011 með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga um húsafriðun, nr. 104/2001. Friðun nær til ytra byrðis hússins.
Byggingarefni
Steinsteypuhús.
Tilkoma fúnksjónalismans um 1930 olli þáttaskilum í íslenskri byggingarlist. Hann birtist einna fyrst í íbúðarhúsum sem Sigurður Guðmundsson teiknaði á árunum 1929-31. Af þeim er Freyjugata 46 eina húsið sem haldið hefur upphaflegum form- og útlitseinkennum.