Fara í efni
Til baka í lista

Grenivíkurkirkja, Grenivík

Friðlýst kirkja

Byggingarár: 1885

Byggingarár: 1887.

Hönnuður: Snorri Jónsson forsmiður á Akureyri.

Breytingar: Forkirkjuturn reistur 1912.

Hönnuður: Björn Björnsson trésmiður.[1]

Kór reistur 1994.

Hönnuður: Hjörleifur Stefánsson arkitekt.[2]

Friðuð 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.

 

Grenivíkurkirkja er timburhús, 10,15 m að lengd og 6,43 m á breidd, með kór undir minna formi, 2,53 m að lengd og 4,59 m á breidd, og ferstrendan turn við vesturstafn, 2,58 m að lengd og 2,64 m á breidd. Krossreist þök eru á kirkju og kór klædd bárujárni. Turninn er burstsettur og á honum hátt píramítaþak klætt sléttu járni. Kirkjan er klædd vatnsklæðningu og stendur á steinsteyptum sökkli. Á hvorri hlið kirkju eru þrír gluggar og einn á hvorri hlið kórs. Í gluggum er miðpóstur og tveir þriggja rúðu rammar og vatnsbretti yfir stutt kröppum. Á framstafni kirkju hvorum megin turns er lítill tveggja rúðu gluggi með bogaramma yfir. Bogadreginn gluggi er á þremur hliðum turns. Í þeim er T-laga póstur og tveir þriggja rúðu rammar neðan þverpósts en bogarammi að ofan. Fyrir kirkjudyrum eru spjaldsettar og glerjaðar vængjahurðir.

Að framkirkju er spjaldsett hurð og gangur inn af þeim að kór sem hafinn er yfir kirkjugólf um eitt þrep. Í kórdyrum eru strikaðar flatsúlur upp undir þverbita og strikaður lágbogi að ofan. Söngsvalir eru yfir fremsta hluta framkirkju og setsvalir inn með hliðum inn að miðglugga. Sveigður stigi er í norðvesturhorni. Veggir forkirkju eru plötuklæddir en framkirkja og kór klædd strikuðum panelborðum. Efst á veggjum framkirkju er strikasylla sem leidd er fyrir austurgafl og þvert fyrir kórdyr, en önnur sylla er í kór. Yfir framkirkju er stjörnusett reituð lágbogahvelfing og önnur minni yfir kór.


[1]Guðni Halldórsson. Viðtal 2000.

[2]Húsafriðunarnefnd. Skjalasafn.Grenivíkurkirkja.