Fara í efni
Til baka í lista

Hlíðarendakirkja, Fljótshlíð

Friðlýst kirkja

Byggingarár: 1897

Byggingarár: 1898.

Hönnuður: Gissur Ísleifsson (1869-1898) smiður frá Kanastöðum í Landeyjum.[1]

Breytingar: Dyrum að kórstúkum á norður- og suðurhlið hefur verið breytt í glugga og kirkjan klædd texplötum að innan og í hana smíðaðir lausir bekkir.[2]

Friðuð 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.

 

Hlíðarendakirkja er timburhús með krossreistu þaki, 10,84 m að lengd og 7,66 m á breidd. Við vesturstafn er tvískiptur turn, 1,88 m að lengd og 2,02 m á breidd. Stöpullinn er ferstrendur og á honum flatt þak og handrið umhverfis. Á því stendur áttstrendur burstsettur turn með áttstrenda spíru. Kirkjan er bárujárnsklædd og stendur á steinhlöðnum sökkli. Á hvorri hlið kirkju eru fjórir bogadregnir gluggar. Í þeim er T-laga póstur með tveimur þriggja rúðu römmum neðan þverpósts en fjögurra rúðu bogaramma að ofan. Á hvorum stafni eru tveir gluggar heldur minni og tveir á framhlið stöpuls en sá efri án bogaramma. Yfir gluggum og dyrum er skrautverk og hæðarskilsband umhverfis kirkju og stöpul. Fyrir kirkjudyrum eru spjaldsettar vængjahurðir og bogagluggi yfir.

Spjaldsettar vængjahurðir eru að framkirkju og gangur inn af þeim og lausir bekkir hvorum megin hans. Kór undir minna formi er hafinn yfir kirkjugólf um eitt þrep. Afþiljaðir klefar eru hvorum megin í kór. Flatsúlur eru í kórdyrum og strikaður bogi yfir. Málaðar helgimyndir eru á austurgafli framkirkju yfir kórdyrum. Sveigður stigi er fremst í framkirkju sunnan megin upp á söngloft við framgafl og setsvalir inn með hliðum. Fimm stoðir eru undir frambrúnum svala hvorum megin. Af sönglofti er opið fram í stöpul. Veggir eru plötuklæddir og efst á þeim er striksylla. Stjörnusett reituð hvelfing er stafna á milli og önnur minni yfir kór. 



[1] Bréf Gissurar Ísleifssonar til Tómasar Sigurðssonar, dags. 17.12.1896. Byggðasafnið í Skógum

[2]Húsafriðunarnefnd. Skjalasafn. Hlíðarendakirkja.