Ljósavatnskirkja, Ljósavatnshreppur, S-Þingeyjarsýslu
Byggingarár: 1891
Byggingarár: 1891–1892.
Hönnuður: Björn Jóhannsson smiður og bóndi á Ljósavatni.[1]
Friðuð 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.
Ljósavatnskirkja er timburhús, 9,52 m að lengd og 6,29 m á breidd. Risþak lagt bárujárni er á kirkjunni. Kirkjan er klædd plægðri vatnsklæðningu og stendur á steinsteyptum sökkli. Strikað kverkband er efst á veggjum undir þakskeggi og er leitt út á súluhöfð efst á hornborðum. Á hvorri hlið kirkju eru þrír smárúðóttir gluggar og einn heldur minni á framstafni. Yfir gluggum er vatnsbretti stutt kröppum. Fyrir kirkjudyrum eru spjaldsettar vængjahurðir.
Inn af dyrum er gangur og þverbekkir hvorum megin hans en veggbekkir og langbekkur í kór. Setuloft á bitum er yfir fremsta hluta framkirkju. Undir frambrún þess eru tvær súlur og stigi í norðvesturhorni. Veggir kirkju eru klæddir strikuðum panelborðum. Efst á þeim er strikasylla uppi undir plötuklæddri lágbogahvelfingu.
[1]Guðni Halldórsson. Bréf til höfundar 1999; Þór Magnússon. Kirkjur Íslands 7. Kirkjuhvammskirkja, 177. Reykjavík 2006.