Fara í efni
Til baka í lista

Norðfjarðarkirkja, Egilsbraut 15

Friðlýst kirkja

Byggingarár: 1896

Byggingarár: 1896–1897.

Hönnuður: Vigfús Kjartansson forsmiður.[1]

Athugasemd: Kirkjan er byggð upp úr Skorrastaðakirkju sem smíðuð var 1886 og fauk í ofsaveðri 1896.

Breytingar: 

Kór smíðaður við kirkjuna 1942. Hönnuður: Ókunnur.

Kór færður 1992 og kirkjan lengd og útbygging smíðuð við norðurhlið. Hönnuðir: Stefán Örn Stefánsson og Grétar Markússon arkitektar.

Friðuð 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.

 

Norðfjarðarkirkja (Neskirkja) er timburhús, 14,68 m að lengd og 7,74 m á breidd, með kór við austurstafn, 3,76 m að lengd og 4,82 m á breidd, og söngstúku við norðurhlið tengda safnaðarheimili, 4,07 m að lengd og 5,83 m á breidd. Þakið er krossreist og upp af vesturstafni er ferstrendur turn með íbjúgu píramítaþaki. Klukkuskífa hefur verið sett á framhlið turns en hljómop með hlera á hvorri hlið. Kirkjan er klædd lóðréttri plægðri borðaklæðningu en þök bárujárni og stendur á steinsteyptum sökkli. Á suðurhlið kirkju eru fjórir smárúðóttir bogadregnir gluggar, tveir á norðurhlið, tveir minni á hvorri hlið kórs, einn hvorum megin dyra og einn yfir þeim. Fyrir kirkjudyrum eru vængjahurðir og dyr á austurhlið söngstúku.

Forkirkja er stúkuð af framkirkju með þverþili. Í henni sunnan megin er stigi upp á setuloft með þverum framgafli yfir forkirkju og fremsta hluta framkirkju og setsvala inn með hliðum. Norðan megin í forkirkju eru dyr að tengibyggingu milli kirkju og safnaðarheimilis, sem byggt var árið 1983 eftir teikningu arkitektanna Ormars Þórs Guðmundssonar og Örnólfs Hall. Að framkirkju eru vængjahurðir og gangur inn af þeim og bekkir hvorum megin gangs. Kórútbyggingin er hafin yfir kirkjugólf um eitt þrep. Innst í framkirkju norðan megin er útbyggð söngstúka fyrir orgel og söngflokk. Veggir eru klæddir lóðréttum panelborðum. Yfir framkirkju og kór eru panelklæddar hvelfingar.



[1]ÞÍ. Bps. C, V. 41. Bréf 1898. Byggingarreikningur hinnar nýju safnaðarkirkju að Nesi í Norðfirði, ásamt fylgiskjölum.