Fara í efni
Til baka í lista

Seyðisfjarðarkirkja

Seyðisfjarðarkirkja
Friðlýst kirkja

Byggingarár: 1922

Byggingarár

1920 til 1922

Hönnuður

Jón G. Jónasson málarameistari teiknaði kirkjuna í núverandi mynd og yfirsmiður var Sigurður Björnsson

Byggingarefni

Timbur

Friðun

Friðuð af mennta- og menningarmálaráðherra 19. desember 2012, með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga um húsafriðun, nr. 104/2001. Friðunin nær til hússins í heild, þ.e. bæði ytra og innra borðs.

 

Seyðisfjarðarkirkja í núverandi mynd var reist á árunum 1920 til 1922 og vígð í ágústmánuði 1922. Hún er að hluta til smíðuð upp úr eldri kirkju sem stóð á Vestdalseyri fram til 1920.

Nýja kirkjan á Fjarðaröldunni er stærri og veglegri en eldri kirkjan á Vestdalseyri en gluggagerð og ýmis önnur stíleinkenni eru þau sömu. Kvenfélag Seyðisfjarðar sá um alla fjáröflun og umsjón með framkvæmdum og lagði félagið mikinn metnað í kirkjubygginguna. Jón G. Jónasson var fenginn til að teikna hið nýja hús, en hann hafði menntað sig í málaraiðn í Bergen á árunum 1900-1903. Yfirsmiður kirkjunnar var Sigurður Björnsson og með honum vann Stefán Runólfsson á Ósi. Jón Vigfússon múrarameistari lagði grunn kirkjunnar. Kirkjan var vígð 6. ágúst 1922.

Seyðisfjarðarkirkja er yngsti en jafnframt stærsti og glæsilegasti fulltrúi fyrir ákveðna gerð austfirskra timburkirkna sem bera skýr staðbundin einkenni, þ.e. þakturn og stóra smárúðótta bogaglugga. Seyðisfjarðarkirkja ber jafnframt sterk einkenni norskrar timburhúsahefðar sem ráðandi er í gamla bænum á Seyðisfirði og er meðal stærstu og veglegustu fulltrúa bárujárnsklæddra timburkirkna aldamótaáranna.

 

Heimild:

Þóra Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar. Seyðisfirði: Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður.


Sjá loftmynd