Fara í efni
Til baka í lista

Skálholtsskóli

Skálholtsskóli
Friðlýst hús

Byggingarár: 1970

Byggingarár

1970 til 1974

Hönnuðir

Manfreð Vilhjálmsson og Þorvaldur S. Þorvaldsson arkitektar

Byggingarefni

Steinsteypa

Friðun

Skálholtsskóli var friðaður af mennta- og menningarmálaráðherra  21. desember 2012, með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga um húsafriðun, nr. 104/2001, ásamt Skálholtskirkju og nánasta umhverfis. Friðunin nær til innra og ytra byrðis Skálholtskirkju, ytra byrðis Skálholtsskóla auk nánasta umhverfis að undanskilinni yfirbyggingu yfir friðlýstar fornleifar Þorláksbúðar.

 

Byggingarnar tvær, Skálholtskirkja, sem Hörður Bjarnason húsameistari ríkisins teiknaði árið 1956, og Skálholtsskóli, sem Manfreð Vilhjálmsson og Þorvaldur S. Þorvaldsson arkitektar teiknuðu árið 1970, eru tvær af vönduðustu byggingum 20. aldar á Íslandi og hafa því mikið gildi í byggingarlistasögu þjóðarinnar. Í útfærslu sinni á Skálholtskirkju hafði Hörður hliðsjón af Brynjólfskirkju sem stóð í Skálholti frá 1650 til 1807, krosslöguð, með þverskipi og hliðarskipum. Hún er einstaklega glæsileg í sínum einfaldleika og látleysi. Við hönnun Skálholtsskóla höfðu arkitekarnir fyrri tíða þorpsmynd í Skálholti í huga. Byggingunni er skipt upp í minni hús með tengigangi og til að árétta mikilvægi samræmis í byggingum í Skálholti var skólinn hafður í sömu litum og kirkjan.

 

Heimild:

Leiðsögn um íslenska byggingarlist (2000). Reykjavík: Arkitektafélag Íslands.


Sjá loftmynd