Fara í efni
Til baka í lista

Staðarkirkja, Grunnavík

Friðlýst kirkja

Byggingarár: 1891

Hönnuður: Guðmundur Árnason snikkari.[1]

Breytingar: Forkirkjuturn reistur 1932.

Hönnuður: Ókunnur.

Friðuð 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.

 

Staðarkirkja í Grunnavík er timburhús, 7,63 m að lengd og 5,73 m á breidd, með tvískiptan turn við vesturstafn, 2,21 m að lengd og 2,30 m á breidd. Á stöpli er risþak upp að ferstrendum turni. Þök kirkju og turns eru krossreist. Kirkjan er bárujárnsklædd og stendur á steinhlöðnum sökkli en stöpull á steinsteyptum kjallara. Steinsteyptur reykháfur er við kórbak norðan megin. Á hvorri hlið kirkju eru þrír póstagluggar með þriggja rúðu römmum og einn minni á framhlið stöpuls yfir dyrum. Á framhlið turns er bogadreginn gluggi með T-laga pósti en hljómop með hlera fyrir á hvorri turnhlið. Fyrir kirkjudyrum eru fjölspjalda vængjahurðir og bogagluggi yfir.

Að framkirkju er spjaldsett hurð og gangur inn af að kór. Hvorum megin gangs eru bekkir með ferstrendum rimlum í baki. Kórþil er í baki innstu bekkja sem klædd eru niður í gólf. Setuloft á bitum er yfir meginhluta framkirkju og stigi við framgafl norðan megin. Veggir eru klæddir strikuðum panelborðum. Strikasylla er efst á veggjum í kór og borðaklædd hvelfing yfir. Yfir setulofti er súðar- og skammbitaloft.


[1]ÞÍ. Biskupsskjalasafn C, V. 145. Bréf 1892. Lýsing Guðmundar Árnasonar snikkara á Staðarkirkju í Grunnavík dagsett 7. janúar 1892.