Fara í efni
Til baka í lista

Strandarkirkja, Selvogur, Ölfushreppi

Friðlýst kirkja

Byggingarár: 1888

Hönnuður: Sigurður Árnason snikkari frá Hlíð í Selvogi.

Saga

Kirkju er fyrst getið á jörðinni Strönd um 1200 en munnmæli í Selvogi herma að Gissur hvíti hafi fyrst gert þar kirkju úr viði sem hann kom með til Íslands í tilefni af kristnitökunni. "Strendur" máldagi er til frá um 1300 og fjallar um hvalreka og önnur rekahlunnindi en elsti máldagi sem fjallar um eignir kirkjunnar er í máldagabók Vilkins biskups frá 1397. Þá er kirkjan helguð Maríu guðs móður og hinum blessaða Tómasi erkibiskup.

Friðuð 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.

Lýsing

Strandarkirkja er timburhús, 11,89 m að lengd og 7,10 m á breidd. Þakið er krossreist og upp af vesturstafni er ferstrendur uppmjór turn með ferstrendu þaki. Undir honum er stallur. Kirkjan er klædd listaþili, þak og turn eru eirklædd og hún stendur á steinhlöðnum sökkli. Á hvorri hlið kirkju eru fjórir gluggar. Í þeim er T-laga póstur með tveimur þriggja rúðu römmum neðan þverpósts en þverramma með bogarimum að ofan. Á framstafni hvorum megin kirkjudyra er tveggja rúðu gluggi en póstgluggi með tveimur þriggja rúðu römmum yfir kirkjudyrum. Fyrir kirkjudyrum eru tvöfaldar vængjahurðir með þverglugga með bogarimum og bjór efst.

Inn af dyrum er forkirkja og í henni snúningsstigi sunnan megin til sönglofts yfir forkirkju og fremsta hluta framkirkju en skrúðhús norðan megin. Spjaldsettar vængjahurðir eru að framkirkju og gangur inn af þeim og bekkir hvorum megin hans. Kór er hafinn yfir kirkjugólf um eitt þrep. Veggir eru klæddir strikuðum panelborðum og hvorum megin altaris eru flatsúlur og bogi yfir því. Reitaskipt hvelfing studd strikasyllu er stafna á milli.

Heimild

Kirkjur Íslands, 4. bindi, bls 151 - 186