Fara í efni
Til baka í lista

Þingmúlakirkja, Austur-Hérað, S-Múlasýsla

Friðlýst kirkja

Byggingarár: 1886

Hönnuðir: Niels Jónsson forsmiður frá Sauðhaga.[1] 

Breytingar: Opin forkirkja smíðuð 1986.

Hönnuður: Bjarni Ólafsson húsasmíðameistari.[2]

Friðuð 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.

 

Þingmúlakirkja er timburhús, 8,46 m að lengd og 5,17 m á breidd, með opna forkirkju við vesturstafn, 1,08 m að lengd og 1,53 m á breidd. Risþök eru kirkju og forkirkju klædd bárujárni. Kirkjan er klædd plægðri vatnsklæðningu og stendur á steinhlöðnum og steinsteyptum sökkli. Á hvorri hlið kirkju eru tveir gluggar. Í þeim er miðpóstur og tveir fjögurra rúðu rammar. Hliðar forkirkju eru klæddar láréttum borðum að neðan en lóðréttum að ofan og súlur eru undir framhornum. Fyrir kirkjudyrum eru tvöfaldar vængjahurðir.

Gangur er inn af kirkjudyrum og aftursættir þverbekkir hvorum megin hans en veggbekkir umhverfis í kór. Prédikunarstóll er milli tveggja innstu bekkjaraða sunnan megin í framkirkju. Veggir eru klæddir strikuðum panelborðum og yfir kirkjunni er panelklædd hvelfing stafna á milli.


[1]ÞÍ. Bps. C, V. 40. Bréf 1890. Reikningur yfir kirkjubyggingu á Þingmúla.

[2]Húsafriðunarnefnd. Skjalasafn. Þingmúlakirkja.