Fara í efni
Til baka í lista

Turnhúsið Neðstakaupstað, Ísafirði

Friðlýst hús

Byggingarár: 1785

Hönnuður: Ókunnur.

Friðað í A-flokki af bæjarstjórn 16. janúar 1975 samkvæmt 2. mgr. 26. gr. og 27. gr. þjóðminjalaga nr. 52/1969.[2]

Friðað 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.

 

Turnhúsið er stokkbyggt einlyft timburhús með risþaki, 19,01 að lengd og 10,24 m á breidd. Á miðju þaki er ferstrendur turn með píramítaþaki. Húsið stendur á steinhlöðnum sökkli, veggstokkar eru óklæddir en gaflhlöðin smíðuð úr bindingsverki og klædd listaþili. Stokkaendar ganga út yfir horn og eru klæddir lóðréttum borðum. Á framhlið og vesturhlið hússins eru fjögur einnar rúðu gluggaop með hlera fyrir og þrír 12 rúðu póstagluggar á hvoru gaflhlaði. Útidyr með vængjahurðum eru á miðri framhlið, aðrar gegnt þeim á bakhlið og dyr með vængjahurðum eru á gaflhlaði sunnan megin og fánastöng efst. Þakið er klætt bárujárni og á því hvorum megin eru fjórir þakgluggar. Turnveggir eru klæddir listaþili, á hverri hlið er tveggja rúðu gluggi, þak er klætt sléttjárni og á því er há spíra.

Jarðhæð er einn salur og stoðaröð með skástífum er eftir endilöngu húsi. Veggstokkar eru óklæddir. Stigi með afþiljuðum skáp undir er við útidyr á austurhlið. Á loftinu eru tvær hæðir, hvor um sig einn salur. Gaflar eru klæddir standþili og súðin klædd rennisúð á milli sperra. Á efra loftinu er stigi upp í þakturninn. Húsið er ómálað að innan.


[1]Húsafriðunarnefnd. Skjalasafn. Turnhúsið í Neðstakaupstað; Af norskum rótum. Elísabet Gunnarsdóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir. Ísafjörður og Vestfirðir – miðstöð hvalveiða, 229. Mál og menning. Reykjavík 2003.

[2]Húsafriðunarnefnd. Skjalasafn. Friðunarskjal Turnhúss í Neðstakaupstað.