Fara í efni

Brekkustígur 5a, Reykjavík, friðaður

Með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun friðaði mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, húsið að Lagargötu 2 í Reykjavík, 1. nóvember 2012, að tillögu Húsafriðunarnefndar.
Tímamót urðu í byggingu steinhúsa þegar Alþingishúsið var byggt á árunum 1880−1881. Íslendingar lærðu þar iðnina að höggva til grjót. Á árunum 1880−1900 voru allmörg steinhús byggð í Reykjavík. Varð þá til ný húsagerð, steinbæir, sem á skömmum tíma varð algeng í Reykjavík. Það voru einkum tómthúsmenn sem byggðu sér steinbæi til íbúðar en áður bjuggu þeir í torfbæjum. Segja má að lag torfbæjarins hafi þarna verið lagað að nýjum aðstæðum og er hér um sérreykvískt fyrirbæri að ræða. Á þessum tíma voru einnig byggð allmörg lítil íbúðarhús úr steini. Munurinn á þeim og steinbæjum er sá að í litlu steinhlöðnu húsunum eru allir veggir byggðir úr tilhöggnu grágrýti. Segja má að með þessari sérreykvísku húsagerð hafi fyrstu þéttbýlisalþýðu Íslands, sem á þessum árum var að slíta sig undan vistarbandinu, verið kippt inn í nútímann, þar sem þá buðust betri og varanlegri húsakynni en fram að þeim tíma höfðu þekkst. Alls voru hlaðin um 200 hús úr grágrýti í Reykjavík á tímabilinu frá 1860 til 1910 − um 130 steinbæir og 70 hús. Síðan hafa steinbæir og steinhlaðin hús verið að týna tölunni, og er nú svo komið að einungis 17 steinbæir og 18 steinhlaðin hús standa enn í Reykjavík.
Einn þessara steinbæja er Garðbær, að Brekkustíg 5a. Friðun hússins nær til ytra byrðis þess.

Bærinn hefur frá upphafi verið nefndur Garðbær. Hann var fyrst virtur árið 1880 og er þá sagður byggður úr grjóti en með timburgafli. Upphaflega var torfþak á bænum en þegar hann var endurbættur árið 1901 var sett á hann járnþak og gaflarnir járnklæddir. Þá var einnig byggður inngönguskúr við hann.

 

Heimild:
Húsaskrá Minjasafns Reykjavíkur – Árbæjarsafns.