Fara í efni

Friðun Laugavegar 36 í Reykjavík

Laugavegur 36
Laugavegur 36

 

Með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun friðaði mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, húsið að Laugavegi 36 í Reykjavík, 19. maí 2011, að tillögu Húsafriðunarnefndar.

Friðunin nær til ytra byrðis framhússins við Laugaveg, sem byggt var árið 1925.

Einar Erlendsson arkitekt teiknaði húsið að Laugavegi 36. Um er að ræða heilsteypta hönnun af hendi Einars og ber húsið einna hæst af verkum hans í listrænu tilliti, með einkennum steinsteypuklassíkur í fáguðum endurreisnarstíl. Húsið er dæmi um góða byggingarlist 20. aldar sem talið er hafa það mikið varðveislugildi að það eigi að teljast til þjóðminja. 

Einar teiknaði húsið fyrir bakarameistarana Stefán Sandholt og Guðmund Ólafsson. Þeir stofnuðu fyrirtækið G. Ólafsson og Sandholt árið 1920 og ráku fyrst verslun að Laugavegi 42 en framleiðslan fór fram á Frakkastíg. Þegar húsið að Laugavegi 36 var tilbúið var öll starfsemin flutt þangað og þar var og er eitt fullkomnasta brauðgerðarhús landsins, rekið af afkomendum þeirra félaga. Sérstaka athygli vakti hinn mikli handhlaðni steinofn, sem enn er notaður.

 

Heimildir:

Leiðsögn um íslenska byggingarlist (2000). Reykjavík: Arkitektafélag Íslands.

Sandholt – Reykjavík. Sótt af http://www.sandholt.is.