Fara í efni

Friðun Tjarnargötu 34 í Reykjavík

Tjarnargata 34
Tjarnargata 34

 

Með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun friðaði mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, húsið að Tjarnargötu 34 í Reykjavík, 18. maí 2011, að tillögu Húsafriðunarnefndar.

Friðunin nær til ytra byrðis hússins.

Þorleifur Eyjólfsson húsameistari teiknaði húsið að Tjarnargötu 34 árið 1925. Verkið er frumraun höfundar eftir að hann lauk námi í Þýskalandi, fyrstur íslenskra húsameistara. Í húsinu birtast stíláhrif af öðrum toga en algeng voru hér á landi á þeim tíma, t.d. ferningslaga grunnform, háreist skífuklætt brotaþak, gluggaútskot og gluggaskipting í láréttu hlutfalli. Húsið er dæmi um góða byggingarlist 20. aldar sem talið er hafa það mikið varðveislugildi að það eigi að teljast til þjóðminja. 

Pétur Halldórsson borgarstjóri og alþingismaður (1887-1940) lét reisa húsið yfir móður sína Kristjönu Pétursdóttur Guðjónsen (1863-1939). Pétur var borgarstjóri í Reykjavík frá 1935 til æviloka. Frá árinu 1909 þar til hann lést átti hann og rak Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar.