Fara í efni

Gamli flugturninn á Reykjavíkurflugvelli friðaður

 

Með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun friðaði mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, gamla flugturninn á Reykjavíkurflugvelli, 18. maí 2011, að tillögu Húsafriðunarnefndar.

Friðunin nær til ytra byrðis turnsins og burðarvirkis hans. 

Flugturninn er eitt þeirra mannvirkja á Reykjavíkurflugvelli sem reist voru á tímum heimsstyrjaldarinnar síðari. Breski herinn hóf byggingu flugturnsins árið 1941 og var hann tekinn í notkun árið 1942. Á stríðsárunum var umferð herflugvéla á Norður Atlantshafi stjórnað úr turninum og eftir að Íslendingar tóku við flugvellinum varð hann miðstöð flug­umferðar­stjórnar á Íslandi og gegndi því hlutverki fram á sjöunda áratug síðustu aldar. Turninn er vitnisburður um sérstakan tíma í sögu þjóðarinnar og hefur því ótvírætt menningar­sögulegt gildi sem ómissandi þjóðminjar.