Fara í efni

Héðinsvöllur við Hringbraut friðaður

 

Með vísan til 1. mgr. 4. gr.  laga nr. 104/2001 um húsafriðun friðaði mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, mannvirki á LeikvallarskýliHéðinsvelli við Hringbraut í Reykjavík 17. mars 2011, að tillögu Húsafriðunarnefndar. Friðunin nær til ytra byrðis leikvallarskýlisins og garðveggja umhverfis leikvöllinn.

Leikvallaskýlið á Héðinsvelli við Hringbraut, er talið, ásamt garðveggjum, vera ómissandi þáttur í heildarmynd verkamannabústaðanna við Hringbraut, sem einnig hafa verið friðaðir.

Á árunum 1931 til 1937 reisti byggingarfélag alþýðu þyrpingu verkamannabústaða við Hringbraut austan Hofsvallagötu, með 72 íbúðum. Gunnlaugi Halldórssyni arkitekt var falið að hanna þessa byggð. Framlag hans markaði tímamót í íslenskum arkitektúr sem fyrsta dæmið um heilsteypta íbúðabyggð í anda módernisma í byggingarlist. Líkt og garðveggurinn umhverfis leikvöllinn og umgjörð Héðinsstyttunar næst Hringbraut er leikvallarskýlið ómissandi þáttur í heildarmynd og skipulagi húsaþyrpingar Gunnlaugs. Það var hannað af arkitektunum Einari Sveinssyni og Ágúst Pálssyni árið 1943. Gæsluvallarskýlin í Reykjavík, sem nú eru að týna tölunni,  voru merkur kafli í menningar- og félagssögu borgarinnar. Því leikvallaskýlið við Hringbraut sérlega mikilvægur fulltrúi fyrir þessa tegund bygginga, sem ber að varðveita.