Fara í efni

Mávanes 4 í Garðabæ friðað

Mávanes 4
Mávanes 4

 

Með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun friðaði mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, húsið að Mávanesi 4 í Garðabæ, 19. maí 2011, að tillögu Húsafriðunarnefndar.

Friðunin nær til ytra byrðis hússins og burðarvirkis þess.

Mávanes 4 er eitt kunnasta íbúðarhús arkitektsins Manfreðs Vilhjálmssonar byggt árið 1964. Um húsið hefur víða verið fjallað, m.a. í innlendum og erlendum fagritum. Það er að margra mati í hópi merkustu verka á sviði íslenskrar nútímabyggingarlistar. Styrkur hússins felst ekki síst í tengslum þess við umhverfið, þar sem garður og bygging renna saman í eina heild. Í þessu húsi komu fram í fyrsta sinn ýmis þekkt höfundareinkenni Manfreðs, ekki síst í yfirborðsmótun steinsteypu og samspili steyptra útveggja við létta burðargrind úr dökku timbri, sem þakið hvílir á án þess að snerta veggina. Hugmyndin byggir öðrum þræði á túlkun höfundarins á fornri íslenskri torfhúsagerð, þar sem þekja hvílir á trégrind innan í grófri tóft sem samgróin er landinu.