Fara í efni

Úthlutanir úr húsafriðunarsjóði árið 2014

Minjastofnun Íslands hefur úthlutað styrkjum úr húsafriðunarsjóði árið 2014. Alls bárust 262 umsóknir um styrki þar sem sótt var um rúmlega 600 milljónir króna. Að þessu sinni var ákveðið að veita styrki til 148 verkefna, samtals að upphæð 92.550.000 kr. 

Við úthlutun styrkja var tekið tillit til faglegrar umsagnar húsafriðunarnefndar á styrkumsóknum.

Þegar auglýst var eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2014 var tekið fram í auglýsingu að lögð yrði sérstök áhersla á að veita styrki til endurbóta á friðlýstum húsum og mannvirkjum. Að þessu sinni var veitt 55.550.000 kr. til þess málaflokks, eða um 60% af þeirri upphæð sem úthlutað var. 

Umsóknir voru metnar með tilliti til varðveislugildis húss eða mannvirkis, gæði umsókna, raunhæfni áætlana og mikilvægi þess verkefnis sem sótt var um styrk til. 

Sótt var um styrki til fjölmargra verðugra og mikilvægra varðveislu- og rannsóknarverkefna sem reyndist því miður ekki unnt að styrkja á þessu ári. Ástæða þess er meðal annars að framlag Ríkissjóðs til húsafriðunarsjóðs árið 2014 var um 82% lægra en árið 2013.   

Allir umsækjendur munu fá send svarbréf vegna styrkumsókna á næstunni. 

Hér má sjá lista yfir umsóknir sem bárust og veitta styrki.