Fara í efni

Viðburðir í tilefni evrópsku menningarminjadaganna 2017

Menningarminjadagarnir eru haldnir ár hvert í þeim 50 löndum sem hlut eiga að Menningarsáttmála Evrópu. Allt frá Aserbæsjan í austri, til Portúgals í vestri og norður til Noregs. Markmið þessara daga er að vekja athygli og áhuga á ríkri og fjölbreyttri menningu þeirra samfélaga sem byggja álfuna. Þema ársins 2017 er „Minjar og náttúra“. Boðið er upp á fjölbreytta viðburði hringinn um landið sem tengjast á einn eða annan hátt mannlífi, náttúru og sögu fyrri tíma hérlendis. Allir viðburðirnir eiga það sameiginlegt að vera í höndum fyrirmyndaraðila sem starfa með menningarminjar. Nánar má fræðast um alla viðburði Menningarminjadaganna á vefsíðunni www.europeanheritagedays.com þar sem hver og einn viðburður glitrar sem stjarna á Íslandskortinu. 

Um þemað „minjar og náttúra“ af síðu Evrópuráðsins :

"Heritage and Nature (2017)

In this year's edition of the #EHDs we are celebrating the intrinsic relationship between people and nature under the common theme: “Heritage and Nature: A Landscape of Possibilities”. Emphasis is given to heritage values embodied in nature and to the extent to which the environment shapes people's lives and lifestyles and its contribution to their well-being and socio-economic prosperity. The events taking place in urban nature sites, historic gardens, national reserves, home yards, national parks, heritage biotopes, protected areas, every day and outstanding landscape will help people to connect to nature and explore its diversity and cultural values."

 

Þátttaka í öllum viðburðunum er ókeypis og eru allir velkomnir!

 

Viðburðir

 

Höfuðborgarsvæðið

Gönguferð um Laugarneshverfið

Minjastofnun Íslands og Borgarsögusafn efna til gönguferðar um Laugarneshverfið laugardaginn 7. október í samstarfi við Ferðafélag Íslands. Ferðin hefst kl. 11 á bílastæði Íslandsbanka á Kirkjusandi.  

Laugarneshverfið er elsta úthverfið í Reykjavík. Þar fór að myndast byggð á þriðja áratug 20. aldar en Laugarnesið á sér mun lengri sögu. Sagt verður frá þróun byggðarinnar, fiskverkun á Kirkjusandi og upphafi byggðar á Teigunum.

Leiðsögumenn verða Guðný Gerður Gunnarsdóttir, Helga Maureen Gylfadóttir og Pétur H. Ármannsson. 

 

Vesturland

Framdalurinn – Fitjasókn í Skorradal, verndarsvæði í byggð

Laugardaginn 14. október mun Hulda Guðmundsdóttir á Fitjum kynna verkefnið „Framdalurinn – Fitjasókn í Skorradal, verndarsvæði í byggð“ en nú er unnið að því að svæðið verði verndarsvæði til að viðhalda menningarminjum og sögu í hinni gömlu Fitjasókn í Skorradal.

Komið verður saman við Fitjar, í botni Skorradals, klukkan 14.00.

 

Vestfirðir

Þjóðtrú, náttúra og fornleifafræði

Einar Ísaksson, minjavörður Vestfjarða, leiðir göngu frá gamla bænum á Broddadalsá út á Stiga að leiði Brodda. Farið verður yfir sögusagnirnar um Brodda og tilgátur um tilurð og val (meints) fornaldarlegstæðis út frá fornleifafræðilegu sjónarmiði. Gangan verður farin sunnudaginn 8. október og hefst kl. 13:00. Tekur hún um 45 mínútur hvora leið. Seinasti spölurinn er stórgrýttur svo gott er að vera vel búinn fyrir gönguna.

 

Norðurland vestra

Fornleifar í Fljótum

Flutt verða þrjú stutt erindi sem endurspegla áhrif náttúru á staðsetningu minja og mótun menningarlandslags og varðveislu þess. Erindin verða haldin laugardaginn 14. október á Gimbur gistiheimili í Fljótum. Guðmundur St. Sigurðarson, minjavörður Norðurlands vestra, mun fjalla um menningarminjar og loftlagsbreytingar, Guðný Zoëga, fornleifafræðingur hjá Byggðasafni Skagfirðinga, gerir grein fyrir fornleifarannsóknum sumarsins í Fljótum og Hjalti Pálsson, ritstjóri Byggðasögu Skagafjarðar, veltir fyrir sér landnámi í Fljótum. Í framhaldinu verður heimsóttur einn af þeim fjölmörgu minjastöðum sem nýlega hefur fundist eða nýjar upplýsingar hafa fengist um.

Dagskrá hefst kl. 13:00 og að erindum loknum verður farið á einkabílum á minjastað í nágrenninu. Áætlað er að dagskrá ljúki eigi síðar en kl 16.

 

Norðurland eystra

Leiðsögn um rústir Evangerverksmiðju

Evangerverksmiðjan var reist 1911 og var fyrsta stóra síldarverksmiðja landsins. Segja má að hún hafi markað innreið nútímans á Siglufirði. Snjóflóð féll á Evangerverksmiðjuna árið 1919 og hefur hún verið rústir einar síðan þá. Örlygur Kristfinnson leiðir göngu um minjasvæðið laugardaginn 14. október kl. 13:00 og verður komið saman á bílastæði.

 

Austurland

Samspil menningarminja og náttúru á Skálanesi

Gönguferð um Skálanes í Seyðisfirði í fylgd með Rannveigu Þórhallsdóttur, fornleifafræðinema og staðkunnugri, þar sem fjallað verður um samspil menningarminja og náttúru. Gengið verður um svæðið, frá Austdalsá og út í Skálanesbjarg og til baka, en gangan tekur um það bil 3 tíma. Gangan verður farin laugardaginn 14. október og hefst hún kl. 13:00. Mæting á bílaplanið við Austdalsá.

 

Suðurland

Laugarvatnshellar í Bláskógabyggð

Tekið verður á móti gestum í Laugarvatnshellum í Bláskógabyggi á milli kl 12 og 16 laugardaginn 14. október. Hellarnir tveir voru höggnir í móberg í Reyðarbarm ofan Laugarvatnsvalla, miðja vegu milli Laugarvatns og Þingvalla og hafa þeir í gegnum tíðina verið í alfaraleið á milli Suður- og Vesturlands. Í upphafi 20. aldar hóf fólk fasta búsetu í hellunum og bjuggu þar tvær fjölskyldur hvor á eftir hinni og ráku meðal annars greiðasölu. Kristján X Danakonungar fékk þar í Íslandsheimsókn sinni árið 1921 skyr með rjóma hjá Vigdísi Helgadóttir húsfreyju.

Veturinn 2017 hafði Smári Stefánsson á Laugarvatni (Laugarvatn Adventure) forgöngu um að endurgera stærri hellinn, eins og hann var þegar síðast var búið í honum, í samráði við sveitarfélagið og Minjastofnun Íslands. Munu Smári og félagar leiðsegja gestum um hellana við þetta tilefni.

 

Suðurnes

Fræðsluerindi um herminjar í Duus safnahúsi í Keflavík og vettvangsferð og leiðsögn á Pattersonflugvöll

Dagskráin hefst laugardaginn 14. október kl. 14:00 í Duushúsi í Keflavík þar sem flutt verða stutt erindi um friðun og varðveislu herminja, ekki síst frá síðari heimstyrjöld. Þór Hjaltalín, minjavörður Reykjaness, fjallar um leiðir til að varðveita minjar og minjaflokka sem ekki njóta lagaverndar í dag og Sigrún Ásta Jónsdóttir, safnstjóri Byggðasafns Reykjanesbæjar, fjallar um hugmyndir að stofnun sérstaks herminjasafns. Eftir flutning erinda fara fundarmenn á vettvang til að skoða Pattersonflugvöll og minjar tengdar honum, en Bandaríkjamenn hófu byggingu flugvallarins snemma árs 1942. Viðburðurinn er samstarfsverkefni Minjastofnunar Íslands, Byggðasafns Reykjanesbæjar og Reykjanes Geopark.