Viðurkenningar í þágu húsverndar
Að lokinni kynningu á tveimur nýjum bindum í ritröðinni Kirkjur Íslands í safnaðarheimili Stykkishólmskirkju föstudaginn 3. september kl. 17.00 mun Húsafriðunarnefnd afhenda Rakel Olsen og Sturlu Böðvarssyni viðurkenningar fyrir gott og ósérhlíft starf í þágu húsverndar.