Fara í efni

Söguganga um Laugarnes

Þura - Þuríður Sigurðardóttir, söng- og myndlistarkona, sem fædd er og uppalin í Laugarnesbænum, leiðir göngu um Laugarnesið og lýsir hvernig það var að alast upp í „sveit í borg“ á þeim sögufræga stað, sem Laugarnesið er. Gangan hefst á Laugarnestanga þar sem embætti biskups hafði aðsetur og Holdsveikraspítalinn. Hernámið kemur við sögu, braggabyggð og listamenn. Skoðaðar verða menningar- og búsetuminjar, farið á Laugarneshólinn, eitt elsta þekkta bæjarstæði Reykjavíkur og í Laugarneskirkjugarð, svo eitthvað sé nefnt.

Gangan byrjar við Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70, kl. 17:00. Ókeypis er í gönguna og öll velkomin!