Fara í efni

Tími til að tengja við Þorlák

Í tilefni Menningarminjadaga Evrópu, sem að þessu sinni eru helgaðir „leiðum, samskiptum og tengingum“, er boðið til samveru í Skálholti á þriðjudaginn 24. september og hefst kl. 17. Fjallað verður um leiðir pílagríma á miðöldum í Skálholt og um samskipti og tengingar á staðnum þar sem Þorláksmessa að sumri, 20. júlí, verður í öndvegi. Þá kom múgur og margmenni saman í Skálholti og minntist Þorláks helga. Helgi Þorláksson mun gera efninu nokkur skil í spjalli innan húss og vænst er umræðna. Áður verður litið inn í Þorláksbúð og síðan gengið um staðinn og bent á kennileiti sem bera nafn Þorláks. Safnast verður saman við kirkjutröppurnar. Eftir erindið er tilvalið að kaupa sér veitingar á Veitingastaðnum Hvönn þar er súpa dagsins á 2990 kr. Aðgangur ókeypis. Verið öll hjartanlega velkomin.