Fara í efni

Að deila saman fortíð

Núverandi landamæri Evrópu voru mörg hver ekki til í tíð forfeðra okkar en samt sem áður geta þau verið tálmi í rannsóknum okkar á fortíð mismunandi landa. Gerðu þér í hugarlund hvernig er að fara í geymslur hinna ýmsu safna og rekast á svo fjölbreytt og mismunandi kerfi fyrir skráningu og geymslu funda frá fornleifarannsóknum að það hamli þér að við frekari rannsóknir. Eða kannski þú sért áhugasamur gestur safnageymslu sem lendir í því að erfitt er að finna þá hluti sem þú vilt sjá og þeir ekki skráðir á réttan máta. Verkefni sem miðar að því að leysa þessi vandamál er nú að ljúka en meginverkefnið var að gera rannsóknir á vitnisburði um sameiginlega fortíð okkar auðveldari en nokkru sinni fyrr.

 Arches-verkefnið (Archaeological Resources in Cultural Heritage, a European Standard) er samstarfsverkefni níu aðila: Belgíu, Tékklandi, þýsku ríkjunum Baden-Wuerttemberg og Saxony-Anhalt, Íslandi, Hollandi, Svíþjóð, Sviss og Bretland. Verkefnið er styrkt af European Union Culture Fund og stutt af Europeae Archaeologiae Consilium (EAC), stefnir að því að búa til sameiginlegan staðal fyrir stjórnun fornleifarannsókna og sköpun tilheyrandi gagna. Skrárnar sem verða til við fornleifauppgröft, úrvinnslu og greiningu eru ekki síður mikilvægir og þeir gripir sem finnast á vettvangi vegna þess að skrárnar veita upplýsingar sem geta varpað ljósi á hlutverk, notkun og förgun gripanna. Samt sem áður eru þessar skrár ekki unnar eftir samræmdum staðli sem skapar vandamál þegar kemur að samanburði rannsókna. Í mörgum löndum er heldur ekki eitt samræmt kerfi til að tryggja að afrakstur vettvangsvinnu sé skipulagður og búin til varðveislu eftir viðurkenndum stöðlum sem myndi gera fólki hægara um vik að finna upplýsingar, og eða hluti, sem það vill rannsaka eða jafnvel bara handleika og meta.

 Arches-verkefnið hefur nú lagt fram "Gagnavarsla fornleifarannsókna í Evrópu. Staðall og leiðbeiningar um bestu starfsvenjur" sem ætti að verða alþjóðlegur staðall fyrir sköpun og skipulagningu upplýsinga um fornleifar og meðhöndlun og geymslu á gripum og sýnum. Þetta þýðir að fólk frá hverju þátttökulandi eða ríki munu skilja hvernig skrár og fundir verða aðgengileg þegar þeir heimsækja önnur lönd. Þetta er mikilvægt vegna þess að það opnar möguleika á rannsóknum sem taka yfir alla Evrópu, auðveldar skilning okkar á fortíðinni án tillits til landamæra, landamæra sem höfðu oft á tíðum litla merkingu fyrir liðnar kynslóðir. Staðlarnir sem ARCHES-verkefnið leggur fram mun gera það auðveldara að deila upplýsingum á alþjóðlega vísu og efla gagnkvæman skilning á eðli og mikilvægi fornleifafræðilegra upplýsinga. Það mun einnig gera það auðveldara fyrir fornleifafræðinga að vinna í öðrum löndum, sem er frábær leið til að skiptast á nýjum hugmyndum um rannsóknir á fortíð okkar.

Viljum við nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu aðilum sem lögðu hér hönd á plóg. Framundan er svo vinna við áframhaldandi þróun á íslenskri útgáfu plaggsins.