Auglýst eftir umsóknum í fornminjasjóð
Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr fornminjasjóði fyrir árið 2021.
Hér má nálgast eyðublöð vegna umsókna.
Umsækjendum er bent á að lesa vel allar þær leiðbeiningar sem koma fram fram á eyðublaðinu, bæði í upphafi þess og neðanmáli.
Síðasti dagur til að skila umsóknum er 10. janúar 2021. Ekki verður tekin afstaða til umsókna sem berast eftir það.
Úthlutunarreglur fornminjasjóðs má sjá hér .