Fara í efni

Tilboð óskast í skráningu strandminja

Minjastofnun Íslands óskar eftir tilboðum í átaksverkefni í skráningu strandminja. 

Svæðin sem um ræðir eru: 

Strandlengja Reykjaness frá Reykjanestá að Garðskaga.

Snæfellsnes frá Hellnum að Ólafsvík.

Strandlengjan frá Hrafnseyri við Arnarfjörð að Þingeyri við Dýrafjörð. 


Nánari verklýsingu má sjá hér auk fylgiskjals 1 og fylgiskjals 2.


Ætlast er til að tilboð berist eigi síðar en 1. nóvember 2016.


Tilboð skulu send á verkefnisstjóra Guðmund Stefán Sigurðarson. Ef nánari upplýsinga er óskað er hægt að hafa samband í gegnum tölvupóst gudmundur@minjastofnun.is  eða í síma 861 4200 / 5701314.