Tilboð óskast í skráningu strandminja
Minjastofnun Íslands óskar eftir tilboðum í átaksverkefni í skráningu strandminja.
Svæðin sem um ræðir eru:
Strandlengja Reykjaness frá Reykjanestá að Garðskaga.
Snæfellsnes frá Hellnum að Ólafsvík.
Strandlengjan frá Hrafnseyri við Arnarfjörð að Þingeyri við Dýrafjörð.
Nánari verklýsingu má sjá hér auk fylgiskjals 1 og fylgiskjals 2.
Ætlast er til að tilboð berist eigi síðar en 1. nóvember 2016.
Tilboð skulu send á verkefnisstjóra Guðmund Stefán Sigurðarson. Ef nánari upplýsinga er óskað er hægt að hafa samband í gegnum tölvupóst gudmundur@minjastofnun.is eða í síma 861 4200 / 5701314.