Fara í efni

Farfi og fegurð - sýning um sögu húsamálunar

Farfi og fegurð- sýning um sögu húsamálunnar verður opnuð í Árbæjarsafni sunnudaginn 10. júní klukkan 15:00. 


Á sýningunni er hægt að fræðast um kalk og tjöru, línolíumálningu og límfarfa. Hvar þessi efni voru notuð og hvenær. Í stássstofunni hefur  Helgi Grétar málarameistari og kennari oðrað brjóstþilið, þar er einnig hægt að sjá marmoreringu og margt fleira fróðlegt og skemmtilegt.

Að sýningunni standa auk Minjasafns Reykjavíkur, Málarameistarafélagið og Félag iðn- og tæknigreina.

Í sama sýningarhúsi á Árbæjarsafni var árið 2006 sett upp sýning um sögu húsagerðar í Reykjavík frá 1840 – 1940 í samvinnu við Menntafélag byggingariðnaðarins.