Fara í efni

Forstöðumaður Minjastofnunar Íslands

Embætti forstöðumanns Minjastofnunar Íslands er laust til umsóknar. Leitað er eftir öflugum og faglegum leiðtoga til að leiða fagstofnun sem hefur það hlutverk að framkvæma minjavörslu í landinu og efla vernd fornleifa og byggingararfs á Íslandi. Forstöðumaður stofnunarinnar þarf að búa yfir metnaði og framsýni til að leiða Minjastofnun Íslands til framtíðar. Gerð er krafa um framhaldsmenntun á háskólastigi á starfssviði stofnunar og með haldgóða þekkingu á málefnasviði hennar. Áhersla er lögð á farsæla stjórnunarreynslu og færni í mannlegum samskiptum. Viðkomandi þarf að geta unnið vel undir álagi, vera agaður og skilvirkur í vinnubrögðum og búa yfir góðri hæfni til að tjá sig í ræðu og riti bæði á íslensku og ensku. Við mat á umsækjendum er miðað við kjörmynd stjórnenda út frá stjórnendastefnu ríkisins.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.09.2024

Nánari upplýsingar er að finna á Starfatorgi ⇒ Forstöðumaður Minjastofnunar Íslands | Ísland.is (island.is)