Fara í efni

Friðaðar kirkjur í Reykjavík - málþing 5. júní 2012


Í tilefni þess að komin eru út tvö bindi í ritröðinni Kirkjur Íslands, sem fjalla um friðaðar kirkjur í Reykjavíkurprófastsdæmum, bjóða Húsafriðunarnefnd, Þjóðminjasafn Íslands, Biskupsstofa, Minjasafn Reykjavíkur og Hið íslenska bókmenntafélag til málstofu og opnunar sýningar í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur þriðjudaginn 5. júní  2012 kl. 16.00.

 

Friðaðar kirkjur í Reykjavík.           

 

1. Þórir Stephensen, fyrrverandi dómkirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey:

Fornar kirkjur í Reykjavík.

2. Þorsteinn Gunnarsson arkitekt:  Uppdrættir að Dómkirkjunni og Viðeyjarkirkju.

3. Júlíana Gottskálksdóttir listfræðingur: Fríkirkjan í Reykjavík.

4. Gerður Róbertsdóttir sagnfræðingur: Nokkrir gripir, fornir og nýir, í friðuðum kirkjum í Reykjavík.

5. Pétur H. Ármannsson arkitekt: Þrjár merkar steinsteypukirkjur í Reykjavík.

 

Að erindum loknum mun biskup Íslands herra Karl Sigurbjörnsson opna sýningu um kirkjur, gripi og minningarmörk sem byggir á ritverkinu.

 

Fundarstjóri er Guðný Gerður Gunnarsdóttir borgarminjavörður.

 

Kirkjur Íslands er grundvallarrit um friðaðar kirkjur á Íslandi þar sem horft er á þær frá sjónarhóli byggingarlistar, stílfræði og þjóðminjavörslu. Í máli og myndum er fjallað um kirkjurnar sjálfar ásamt kirkjugripum og minningarmörkum. Kirkjur Íslands eru glæsilegar listaverkabækur sem opna sýn inn í mikilvægan þátt í íslenskri menningarsögu. Til útgáfunnar var stofnað í tilefni af 1000 ára afmæli kristnitöku á Ísland. Áætlað er að bókaflokkurinn verði 27 bindi og útgáfunni ljúki 2016.

 

Að útgáfunni standa Húsafriðunarnefnd, Þjóðminjasafn Íslands og Biskupsstofa. Meðútgefandi og dreifingaraðili er Hið íslenska bókmenntafélag.