Friðlýsing elstu byggingarinnar á Bifröst
Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur elsta hluta skólabygginga Samvinnuskólans á Bifröst í Borgarfirði. Friðlýsingin tekur til ytra borðs samkomuhúss frá 1950, veggfastra innréttinga í samkomusal og setustofu samkomuhúss, ytra borðs tengigangs milli samkomuhúss og gistiálmu, sem reist var árið 1955, og veggmyndar á tengigangi eftir Hörð Ágústsson listmálara. Samkomuhúsið var upphaflega teiknað af arkitektunum Gísla Halldórssyni, Kjartani Sigurðssyni og Sigvalda Thordarson, en Sigvaldi fékk það verkefni á Teiknistofu S.Í.S. árið 1948 að ljúka við frágang og innréttingar hússins sem þá var að hluta risið en var ekki frágengið að fullu.
Samkomuálman á Bifröst er einlyft timburhús með risi og kjallara undir hluta bakálmu. Húsið er mjög vel varðveitt í upprunalegri mynd jafnt utan sem innan en þarfnast viðhalds. Asbestklæðning er á hluta útveggja og krossviður að hluta sem þörf er á að endurnýja. Samkomuhúsið á Bifröst er að mati Minjastofnunar mikilvægt og vel varðveitt dæmi um höfundarverk Sigvalda Thordarson og samstarfsmanna hans, Gísla og Kjartans, frá upphafsárum þeirra starfsferils. Ekki síst á það við innréttingar og búnað í samkomusal og setustofu, sem varðveist hefur í nær upprunalegri mynd.
Árið 1955 var reist áðurnefnd viðbygging við samkomuhúsið, þrílyft álma með gistiherbergjum ásamt tengigangi eftir uppdráttum Skúla H. Norðdahl arkitekts hjá Teiknistofu S.Í.S. Heimavistarálman tekur mið af form- og útlitseinkennum samkomuhússins. Saman mynda húsin tvö fallega og samræmda heild. Bæði húsin hafa einkennt ásýnd Bifrastar frá upphafi og hafa í hugum fólks öðlast sess sem hluti staðarmyndar Norðurárdals og táknmynd þeirra skólastofnana sem þar hafa starfað. Í tengigangi milli samkomuhússins og gistiálmu er veggmynd í anda strangflatarlistar, gerð af Herði Ágústssyni listmálara árið 1957. Er hún sú eina sem varðveist hefur af þeim fimm veggmyndum sem Hörður vann í opinberum byggingum á árunum 1953-1959.