Fara í efni

Friðun Ásvallagötu 67 í Reykjavík

Ásvallagata 67
Ásvallagata 67

 

Með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun friðaði mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, húsið að Ásvallagötu 67 í Reykjavík, 18. maí 2011, að tillögu Húsafriðunarnefndar.

Friðunin nær til ytra byrðis hússins.  

Húsið að Ásvallagötu 67 teiknaði Þórir Baldvinsson arkitekt árið 1934. Húsareitur Byggingar­samvinnufélags Reykjavíkur við Ásvallagötu er elsta dæmi um heilsteypta byggð í anda fúnksjónalisma. Þórir Baldvinsson teiknaði aðra húsgerðina, tvílyft einbýlishús úr timbri með forskalningu. Ásvallagata 67 er eina húsið þeirrar gerðar sem ekki hefur verið breytt.