Friðun Brekkuskóga 8 á Álftanesi
Með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun friðaði mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, húsið að Brekkuskógum 8 á Álftanesi, 18. maí 2011, að tillögu Húsafriðunarnefndar.
Friðunin nær til ytra byrðis hússins og burðarvirkis þess.
Samhliða tillögu að Brekkuskógum 8 lagði Húsafriðunarnefnd til að húsið að Brekkuskógum 10 væri friðað. Húsin eru byggð á árunum 1959-62 eftir sameiginlegri teikningu arkitektanna Guðmundar Kr. Kristinssonar og Manfreðs Vilhjálmssonar. Húsin standa á brekkubrún við jaðar ósnortins strandsvæðis og mynda samstæða heild. Húsin hafa varðveist með upphaflegum útlitseinkennum og innréttingum. Arkitektarnir tveir litu á byggingu eigin íbúðarhúss sem tækifæri til að reyna ýmsar nýjungar í innra skipulagi, uppbyggingu og efnisnotkun. Í stað steyptra burðarveggja hvílir léttbyggt þakið á burðargrind úr stálstoðum, sem vegg- og gluggaeiningar í föstum stærðum eru felldar að. Skipulag íbúðanna var óhefðbundið, þar sem segja má að gæti japanskra áhrifa: eitt opið rými með rennihurðum, léttum milliveggjum og skápaeiningum í stað fastra veggjaAð þessu leyti mörkuðu húsin þáttaskil í þróun íslenskrar nútímabyggingarlistar.