Fara í efni

Friðun Hringbrautar 35 til 49 í Reykjavík

Hringbraut
Hringbraut


Með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun friðaði mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, atvinnu- og fjölbýlishúsin að Hringbraut 35 til 41 og 43 til 49  í Reykjavík, 15. nóvember 2010, að tillögu Húsafriðunarnefndar.

Friðunin nær til ytra byrðis húsanna.

Þessi hús, sem teljast vera fyrstu íbúðarblokkir í Reykjavík, teiknuðu arkitektarnir Einar Sveinsson og Ágúst Pálsson á árunum 1942-1944. Húsin eru steinsteypt og steinuð að utan með innlendu kvarsi og silfurbergi.  Mjög var til þeirra vandað að öllu leyti.  Með byggingunum kom fram nýtt byggingarlag  með lágreistu valmaþaki og steyptum þakrennum. Áberandi einkenni á bakhlið húsanna eru skásett útskot með hornglugga á stofu hverrar íbúðar auk bogadreginna svala með innbyggðri blómasyllu. Vegna alls þessa teljast húsin vera tímamótaverk og því mjög mikilvæg í byggingarlistasögu Íslands.