Fara í efni

Friðun Landspítalans

Landspitali
Landspitali

 

Með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun friðaði mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, Landspítalann í Reykjavík, 29. apríl 2011, að tillögu Húsafriðunarnefndar.

Friðunin nær til ytra byrðis elsta hluta Landspítalans, sem byggður var á árunum 1926 til 1930.

Landspítalinn er tvímælalaust ein best hannaða byggingin af hendi Guðjóns Samúelssonar. Landspítalinn er áberandi stórhýsi í borgarmynd Reykjavíkur með ótvírætt listrænt og menningarsögulegt gildi. Lágmyndin „Líkna og lækna“ á burst yfir inngangi er með elstu dæmum um listskreytingu opinberrar byggingar með verki íslensks listamanns. Hún er eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal.

Bygging spítalans var baráttumál íslenskra kvenna, sem þannig vildu minnast kosningaréttar sem konur fengu árið 1915. Alexanderine Danadrotting lagði hornstein að byggingunni árið 1926, sem hýsti í upphafi einungis tvær deildir, hand- og lyflækningadeild.

 

Heimild:

Páll Líndal (1991). Reykjavík. Sögustaður við Sund. Reykjavík: Örn og Örlygur.