Fara í efni

Friðun Laugavegar 64 í Reykjavík

 

Með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun friðaði mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, húsið að Laugavegi 64 í Reykjavík, 19. apríl 2011, að tillögu Húsafriðunarnefndar. Þegar Húsafriðunarnefnd ákvað að leggja til við ráðherra að friða 11 hús við Laugaveg árið 2007 var einkum litið til þess að húsin hafa öll mikið gildi fyrir umhverfi sitt, flest þeirra hafa einnig mikið listrænt gildi og mörg hver töluvert menningarsögulegt gildi. Jafnframt er horft til þess að mikilsvert sé að varðveita byggingarsögulega fjölbreytni þessa hluta miðbæjarins og tengsl Laugavegar við aðliggjandi götur sem margar hafa varðveitt upphaflegt svipmót sitt.

Friðun Laugavegar 64 nær til ytra byrðis hússins við Laugaveg, sem að grunni til á upphaf sitt að rekja til ársins 1908.

Ætíð hefur verið verslun á jarðhæð þessa virðulega húss, sem í upphafi skartaði næpu efst á turninum. Fyrsti eigandi hússins var Jóhannes Kr. Jóhannesson. Árið 1916 stofnaði Gunnar Þórðarson nýlendu- og matvöruverslun sem nefndist Vöggur og var húsið lengi kennt við hana, þó hún hefði aðeins verið í húsinu til ársins 1926, en þá hóf nafni hans Gunnar Jónsson verslunarrekstur í húsinu.

 

Heimildir:

Guðjón Friðriksson (1994). Saga Reykjavíkur. Bærinn vaknar 1870-1940. Síðari hluti. Reykjavík: Iðunn.

Nikulás Úlfar Másson og Margrét Jónasdóttir (1993). Byggingasaga. Stgr. 1.174.2. Skýrslur Árbæjarsafns XXVI. Reykjavík: Árbæjarsafn.