Grandavegur 40 og Garðar við Ægisíðu í Reykjavík friðaðir
Friðun steinbæja og steinhlaðinna húsa
Tímamót urðu í byggingu steinhúsa þegar Alþingishúsið var byggt á árunum 1880−1881. Íslendingar lærðu þar iðnina að höggva til grjót. Á árunum 1880−1900 voru allmörg steinhús byggð í Reykjavík. Varð þá til ný húsagerð, steinbæir, sem á skömmum tíma varð algeng í Reykjavík. Það voru einkum tómthúsmenn sem byggðu sér steinbæi til íbúðar en áður bjuggu þeir í torfbæjum. Segja má að lag torfbæjarins hafi þarna verið lagað að nýjum aðstæðum og er hér um sérreykvískt fyrirbæri að ræða. Á þessum tíma voru einnig byggð allmörg lítil íbúðarhús úr steini. Munurinn á þeim og steinbæjum er sá að í litlu steinhlöðnu húsunum eru allir veggir byggðir úr tilhöggnu grágrýti. Segja má að með þessari sérreykvísku húsagerð hafi fyrstu þéttbýlisalþýðu Íslands, sem á þessum árum var að slíta sig undan vistarbandinu, verið kippt inn í nútímann, þar sem þá buðust betri og varanlegri húsakynni en fram að þeim tíma höfðu þekkst. Alls voru hlaðin um 200 hús úr grágrýti í Reykjavík á tímabilinu frá 1860 til 1910 − um 130 steinbæir og 70 hús. Síðan hafa steinbæir og steinhlaðin hús verið að týna tölunni, og er nú svo komið að einungis 17 steinbæir og 18 steinhlaðin hús standa enn í Reykjavík. Vegna sérstöðu steinbæjanna og steinhlöðnu íbúðarhúsanna í menningar- og byggingasögu Reykjavíkur má ljóst vera að eftirstandandi hús hafa öll mjög mikið varðveislugildi. Því var samþykkt á fundi Húsafriðunarnefndar 11. nóvember 2010 að fela forstöðumanni að hefja undirbúning tillögu að eftirtalinna þrjátíu steinbæja og steinhlaðinna húsa í Reykjavík.
Bankastræti 3 Bergstaðastræti 12
Bergstaðastræti 21 Bergstaðastræti 22
Bergstaðastræti 24 Bjargarstígur 17
Bókhlöðustígur 6 Brekkustígur 5a
Bræðraborgarstígur 14 Bræðraborgarstígur 19
Drafnarstígur 5 og 5a Garðar við Ægisíðu
Grandavegur 40 Holtsgata 41b
Ingólfsstræti 23 Klapparstígur 19
Lagargata 2 (áður Bakkastígur 9) Laufásvegur 5
Nýlendugata 9 Reynistaður, Skildinganesi
Skólavörðustígur 4 Skólavörðustígur 22
Skólavörðustígur 22a Sólvallagata 68
Suðurgata 26a Tómasarhagi 16b
Vesturgata 50 Vesturgata 57
Vesturgata 61 Þingholtsstræti 1
Nú hefur mennta- og menningarmálaráðherra ákveðið að friða tvö þessara húsa, þ.e. Grandaveg 40 og Garða við Ægisíðu 45. Áður hafa eftirtalin hús verið friðuð: Bankastræti 3, Bergstaðastræti 12, Bergstaðastræti 21, Bergstaðastræti 22, Bergstaðastræti 24, Bjargarstígur 17, Bókhlöðustígur 6, Brekkustígur 5a, Bræðraborgarstígur 14, Bræðraborgarstígur 19, Lagargata 2, Suðurgata 26a og Tómasarhagi 16b. Friðunin nær til ytra byrðis húsanna.