Fara í efni

Húsafriðunarsjóður 2025 - Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki fyrir árið 2025

Ingimundarhús, byggt 1882 – Oddagötu 1, Seyðisfirði
Ingimundarhús, byggt 1882 – Oddagötu 1, Seyðisfirði

Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsafriðunarsjóði fyrir árið 2025.

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2024 og stefnt er að því að úthlutun liggi fyrir eigi síðar en 15. mars 2025.

Allar upplýsingar og hlekki á umsóknir má finna hér: Umsóknir í húsafriðunarsjóð | Minjastofnun

Vinsamlegast lesið vel allar leiðbeiningar á umsóknarsíðu áður en umsóknareyðublaðið er fyllt út.