Fara í efni

Laugavegur 44 í Reykjavík friðaður

Laugavegur 44
Laugavegur 44

 

Með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun friðaði mennta- og menningarmálaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, húsið að Laugavegi 44 í Reykjavík, 18. ágúst 2011, að tillögu Húsafriðunarnefndar. Þegar Húsafriðunarnefnd ákvað að leggja til við ráðherra að friða 11 hús við Laugaveg árið 2007 var einkum litið til þess að húsin hafa öll mikið gildi fyrir umhverfi sitt, flest þeirra hafa einnig mikið listrænt gildi og mörg hver töluvert menningarsögulegt gildi. Jafnframt er horft til þess að mikilsvert sé að varðveita byggingarsögulega fjölbreytni þessa hluta miðbæjarins og tengsl Laugavegar við aðliggjandi götur sem margar hafa varðveitt upphaflegt svipmót sitt.

Friðun Laugavegar 44 nær til ytra byrðis timburhússins við Laugaveg, sem byggt var árið 1908.

Fyrsti eigandi hússins var Þorsteinn Egilsson kaupmaður. Húsið var byggt af metnaði og er góður fulltrúi fyrir íslenska timburhúsagerð þegar hún var með sem mestum blóma í byrjun 20. aldar. Allmikið skraut var upphaflega á húsinu, en sumt af því hefur nú verið fjarlægt. Fljótlega eftir byggingu hússins var það lengt um rúma 6 m til austurs, settir á það kvistir og svalir. Síðar voru gluggar verslunar á jarðhæð stækkaðir.

 

Heimild:

Nikulás Úlfar Másson og Helga Maureen Gylfadóttir (2001). Húsakönnun. Laugavegsreitir – miðsvæði. Skýrsla Árbæjarsafns nr. 86 Reykjavík: Árbæjarsafn.