Fara í efni

Litabók um menningarminjar

Minjastofnun hefur nú gefið út litabók, Litað í kringum landið, sem unnin var af Örnu Ingu Arnórsdóttur í sumar. Arna starfaði hjá Minjastofnun sem sumarstarfsmaður í tengslum við sumarvinnuátak Vinnumálastofnunar fyrir námsmenn. 



Í litabókinni er að finna myndir af hátt í þriðja tug menningarminja; fornleifa, húsa og mannvirkja, um land allt og af öllum stærðum og gerðum sem hægt er að lita og njóta!



Litabok-flateyMeð litabókinni vill Arna minna á mikilvægi þess að varðveita minjar og gamlar byggingar. Bókina er til dæmis hægt að taka með í ferðalag um landið þar sem hægt er að stoppa á áfangastöðum sem merktir eru í bókinni, skoða fallegar menningarminjar og lita myndirnar.



Litabókina, Litað í kringum landið, eftir Örnu Ingu Arnórsdóttur má nálgast hér á PDF formi .

Litabok-selatangar