Fara í efni

Málstofa og sýning um friðaðar kirkjur í Múlaprófastsdæmi

24.-bindi
24.-bindi

Í tilefni þess að út eru komin tvö ný bindi – hið tuttugasta og fjórða og fimmta – í ritröðinni Kirkjur Íslands býður Minjastofnun Íslands, Þjóðminjasafn Íslands, Biskupsstofa og Hið íslenska bókmenntafélag til málstofu og opnunar sýningar á Egilsstöðum laugardaginn 5. september kl. 15:00. Málstofan fer fram í húsnæði Austurbrúar við Tjarnargötu 39 en sýningin er sett upp í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju.

Friðaðar kirkjur í Múlaprófastsdæmi.

Dagskrá:

1.     Þorsteinn Gunnarsson arkitekt og ritstjóri:  Kirkjur Íslands.

2.     Hjörleifur Guttormsson náttúrufræðingur og fyrrverandi alþingismaður og ráðherra:  Kirkjustaðir í Múlaprófastsdæmi.

3.     Pétur H. Ármannsson arkitekt hjá Minjastofnun Íslands:  Friðaðar kirkjur í Múlaprófastsdæmi.

4.     Lilja Árnadóttir safnvörður munasafns Þjóðminjasafns Íslands:  Nokkrir gripir, fornir og nýir, í kirkjum í Múlaprófastsdæmi.

5.     Guðlaug Vilbogadóttir sérfræðingur hjá Minjastofnun Íslands:  Minningarmörk í Múlaprófastsdæmi.

Að málstofunni lokinni mun séra Davíð Baldursson prófastur opna sýningu um kirkjur, gripi og minningarmörk ,sem byggir á ritverkinu, í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju.

Fundarstjóri er Rúnar Leifsson minjavörður Austurlands.

Kirkjur Íslands er grundvallarrit um friðaðar kirkjur á Íslandi þar sem horft er á þær frá sjónarhóli byggingarlistar, stílfræði og þjóðminjavörslu. Í máli og myndum er fjallað um kirkjurnar sjálfar ásamt kirkjugripum og minningarmörkum. Kirkjur Íslands eru vandaðar og glæsilegar bækur sem opna sýn inn í mikilvægan þátt í íslenskri menningarsögu. Til útgáfunnar var stofnað í tilefni af 1000 ára afmæli kristnitöku á Íslandi. Áætlað er að bókaflokkurinn verði 28 bindi og útgáfunni ljúki 2016.

Að útgáfunni standa Minjastofnun Íslands, Þjóðminjasafn Íslands og Biskupsstofa. Meðútgefandi og dreifingaraðili er Hið íslenska bókmenntafélag.

Verið velkomin til málstofu og opnunar sýningar laugardaginn 5. september klukkan 15:00 að Austurbrú, Tjarnarbraut 39, Egilsstöðum, og síðar í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju.