Menningarminjadagarnir - auglýst eftir viðburðum
Minjastofnun Íslands sér um skipulagningu Menningarminjadaganna (European Heritage Days) á Íslandi, en þeir eru samevrópsk hátíð sem Evrópuráðið stendur í grunninn fyrir. Hlutverk daganna er að vekja athygli almennings á menningarminjum og því hve mikilvægar þær eru, bæði fyrir samfélagið sjálft og efnahag. Markmið með þessum dögum er að fá aðila í héraði, grasrótarsamtök, áhugamenn og eldhuga, til að standa að viðburðum og virkja samfélagið og gesti þess með sér, þ.e. ýta undir virka þátttöku í viðburðunum. Auk þessa er hugmyndin sú að bæði aðstandendur og þátttakendur viðburðanna fái tilfinningu fyrir sam-Evrópskum menningararfi okkar.
Menningarminjadagarnir verða haldnir hér á landi helgina 30. ágúst - 1. september og er þema ársins "Listir og leikir" eða "Arts and Entertainment". Þurfa viðburðir Menningarminjadagana að falla undir þemað með einum eða öðrum hætti.
Minjastofnun auglýsir eftir viðburðum á dagskrá Menningarminjadaganna. Viðburðirnir þurfa að uppfylla markmið Menningarminjadaganna um að setja menningarminjar á oddinn og huga að evrópskri tengingu, en einnig verða þeir að taka mið af þema ársins "Listir og leikir".
Allir viðburðir sem valdir eru á dagskrá Menningarminjadaganna eru skráðir inn á samevrópska síðu daganna þar sem áhugasamir geta nálgast upplýsingar um viðburði í öllum þeim löndum sem taka þátt í Menningarminjadögunum, en þau eru um fimmtíu talsins.
Þeim sem hafa áhuga á að skrá viðburði á dagskrá Menningarminjadaganna er bent á að hafa samband við Ástu Hermannsdóttur, verkefnastjóra, á tölvupóstfang asta@minjastofnun.is
Hér má finna ítarlegri upplýsingar um Menningarminjadagana 2019 og þema þeirra .