Fara í efni

Námskeið á Reyðarfirði um viðhald og viðgerðir

Dagana 20. og 21. maí n.k. verður haldið námskeið á Reyðarfirði um viðhald og viðgerðir gamalla húsa. Þetta námskeið er fyrir alla sem ætla sér að vinna við viðhald og viðgerðir á gömlum timburhúsum. Fjallað er um undirstöður og burðarvirki og farið yfir frágang bæði utan- og innanhúss. Skoðuð eru gömul timburhús sem hafa verið endurbyggð. Þátttakendum er kennt að meta varðveislugildi húsa og breytingar sem gerðar hafa verið á þeim frá því þau voru byggð og hvernig staðið skuli að viðhaldi og viðgerðum á þeim. Námskeiðið er haldið í samvinnu Minjastofnunar Íslands, Borgarsögusafn Reykjavíkur og Iðunnar fræðsluseturs.


Nánari upplýsingar má finna hér.