Óvæntur fornleifafundur
Frá því í nóvember á síðasta ári hafa miklar
framkvæmdir verið í kjallara aðalskrifstofu Minjastofnunar á Suðurgötu 39 í
Reykjavík. Í ljós kom leynd mygla í stórum hluta rýmisins, rífa þurfti allt
innan úr kjallaranum, komast fyrir mygluna og að lokum endurinnrétta. Nú er sú
vinna komin vel á veg. Ákveðið var að nýta tækifærið og opna á milli tveggja
rýma í suðurenda hússins með því að setja þar dyr. Við þá vinnu kom í ljós
gömul hurð, líklega upprunaleg, sem lokað hefur verið og klætt yfir. Allt
bendir til þess að þessi breyting á rýminu hafi átt sér stað um eða rétt fyrir
1972, en þá flutti Sjálfstæðisflokkurinn úr húsinu og því var breytt í
barnaheimili. Sjálfstæðisflokkurinn hafði bækistöðvar sínar í húsinu frá 1956,
enda þekkja margir það undir heitinu Valhöll, og höfðu Heimdellingar m.a. sína
aðstöðu í kjallaranum á tímabili. Tímasetning þessara breytinga er metin út frá
miða sem fannst á hurðinni sem falin var inni í veggnum:
„Bannað að opna
hurðina. Hér eru kommar. As everywhere“.
Af rithöndunum að dæma hafa hér þrír einstaklingar átt hlut að máli. Líklega hefur nú fyrsti hlutinn verið skrifaður af ráðsettum aðila í húsinu, en spurning hvort Heimdellingar hafi átt heiðurinn að seinni tveimur athugasemdunum. Kannast einhver við það að eiga þessar fleygu athugasemdir? Og af hverju var bannað að opna þessa hurð?