Staða minjavarðar Reykjavíkur og nágrennis laus til umsóknar
Minjastofnun hefur auglýst lausa til umsóknar stöðu minjavarðar Reykjavíkur og nágrennis. Leitað er að einstaklingi með háskólapróf á sviði arkitektúrs/byggingarlistar. Staðgóð þekking á lagaumhverfi byggingar- og skipulagsmála er nauðsynleg. Reynsla af skipulagsmálum, byggingarsögulegum rannsóknum, endurbyggingu eldri húsa og minjavernd er mikilvæg. Þekking á byggingartækni og reynsla af hönnun húsa er æskileg.
Um er að ræða fullt starf frá 1. desember næstkomandi.
Umsóknarfrestur er til og með 10. október.