Fara í efni

Steinbæirnir við Drafnarstíg 5 og 5a friðaðir

Friðun steinbæja og steinhlaðinna húsa

Tímamót urðu í byggingu steinhúsa þegar Alþingishúsið var byggt á árunum 1880−1881. Íslendingar lærðu þar iðnina að höggva til grjót. Á árunum 1880−1900 voru allmörg steinhús byggð í Reykjavík. Varð þá til ný húsagerð, steinbæir, sem á skömmum tíma varð algeng í Reykjavík. Það voru einkum tómthúsmenn sem byggðu sér steinbæi til íbúðar en áður bjuggu þeir í torfbæjum. Segja má að lag torfbæjarins hafi þarna verið lagað að nýjum aðstæðum og er hér um sérreykvískt fyrirbæri að ræða. Á þessum tíma voru einnig byggð allmörg lítil íbúðarhús úr steini. Munurinn á þeim og steinbæjum er sá að í litlu steinhlöðnu húsunum eru allir veggir byggðir úr tilhöggnu grágrýti. Segja má að með þessari sérreykvísku húsagerð hafi fyrstu þéttbýlisalþýðu Íslands, sem á þessum árum var að slíta sig undan vistarbandinu, verið kippt inn í nútímann, þar sem þá buðust betri og varanlegri húsakynni en fram að þeim tíma höfðu þekkst. Alls voru hlaðin um 200 hús úr grágrýti í Reykjavík á tímabilinu frá 1860 til 1910 − um 130 steinbæir og 70 hús. Síðan hafa steinbæir og steinhlaðin hús verið að týna tölunni, og er nú svo komið að einungis 17 steinbæir og 18 steinhlaðin hús standa enn í Reykjavík. Vegna sérstöðu steinbæjanna og steinhlöðnu íbúðarhúsanna í menningar- og byggingasögu Reykjavíkur má ljóst vera að eftir­standandi hús hafa öll mjög mikið varðveislugildi. Því var samþykkt á fundi Húsafriðunarnefndar 11. nóvember 2010 að fela forstöðumanni að hefja undirbúning tillögu að eftirtalinna þrjátíu steinbæja og steinhlaðinna húsa í Reykjavík.

 

Bankastræti 3                                                 Bergstaðastræti 12       

Bergstaðastræti 21                                       Bergstaðastræti 22       

Bergstaðastræti 24                                       Bjargarstígur 17           

Bókhlöðustígur 6                                           Brekkustígur 5a           

Bræðraborgarstígur 14                                Bræðraborgarstígur 19 

Drafnarstígur 5 og 5a                                   Garðar við Ægisíðu     

Grandavegur 40                                            Holtsgata 41b  

Ingólfsstræti 23                                             Klapparstígur 19          

Lagargata 2 (áður Bakkastígur 9)             Laufásvegur 5 

Nýlendugata 9                                               Reynistaður, Skildinganesi    

Skólavörðustígur 4                                       Skólavörðustígur 22    

Skólavörðustígur 22a                                  Sólvallagata 68

Suðurgata 26a                                              Tómasarhagi 16b         

Vesturgata 50                                                Vesturgata 57  

Vesturgata 61                                                Þingholtsstræti 1

 

Nú hefur mennta- og menningarmálaráðherra ákveðið að friða tvö þessara húsa, þ.e. Drafnarstíg 5 og 5a. Áður hafa eftirtalin hús verið friðuð: Bankastræti 3, Bergstaðastræti 12, Bergstaðastræti 21, Bergstaðastræti 22, Bergstaðastræti 24, Bjargarstígur 17, Bókhlöðustígur 6, Brekkustígur 5a, Bræðraborgarstígur 14, Bræðraborgarstígur 19Garðar við Ægisíðu 45, Grandavegur 40Lagargata 2, Suðurgata 26a og Tómasarhagi 16b. Friðunin nær til ytra byrðis húsanna.